Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 16:26
Kári Snorrason
Senesi til Tottenham (Staðfest)
Mynd: Tottenham
Tottenham hefur tilkynnt um komu Marcos Senesi sem kemur á frjálsri sölu frá Bournemouth. Argentíski varnarmaðurinn skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.

Tottenham ætlar sér að styrkja raðirnar fyrir komandi tímabil í úrvalsdeildinni og hefur þegar tilkynnt um komu Andy Robertson frá Liverpool.

Þá er félagið jafnframt nálægt því að landa Jan Paul van Hecke frá Brighton.

Bournemouth reyndi í vetur að fá Senesi til að skrifa undir nýjan samning en hann hafnaði þremur tilboðum félagsins og fór að ræða við aðra klúbba.

Senesi var ekki valinn í upprunalegan HM hóp Argentínu en gæti verið kallaður inn í hópinn vegna meiðsla Leo Balerdi.

Varnarmaðurinn lék með Bournemouth í fjögur ár, þar áður var hann á mála hjá Feyenoord.


Slapp
banner