Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 12:25
Kári Snorrason
Newcastle kaupir franskan markvörð (Staðfest)
Við undirskrift.
Við undirskrift.
Mynd: Newcastle
Newcastle hefur gengið frá kaupum á franska markverðinum Ewen Jaouen frá Reims.

Enska félagið greiðir rúmlega átján milljónir punda fyrir Jaouen, sem er talinn einn efnilegasti markvörður Frakklands.

Jaouen er 20 ára gamall og hefur spilað sex leiki fyrir yngri landslið Frakka.

Hann er aðalmarkvörður hjá Stade de Reims sem leikur í næstefstu deild í Frakklandi.

Aaron Ramsdale var á láni hjá Newcastle og var varamarkvörður félagsins á nýafstaðinni leiktíð en félagið nýtti ekki kaupákvæðið í lánssamningnum sem hljóðaði upp á 20 milljónir punda.


Slapp
banner