KA sótti stig í Kórinn í dag þegar þeir heimsóttu HK í fyrstu umferð Pepsí Max-deildar karla þar sem leiknum lauk með markalausu jafntefli.
Steinþór Már Auðunsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir KA í efstu deild og hélt markinu hreinu, hann segir það hafa verið draumur sinn lengi að spila með KA í efstu deild.
„Það var mjög gaman og alltaf gaman að halda hreinu þótt maður hefði viljað skora eitt mark og vinna leikinn. Það hefur alltaf verið draumur að spila fyrir KA í efstu deild, ég ætla ekki að fara ljúga öðru."

„Já maður reynir bara að gera sig stóran og breiðan og vera fyrir og það gekk í þetta skiptið"
Sagði Steinþór spurður út í dauðafæri sem hann varði frá Stefáni.
„ Það er alltaf leiðinlegt að missa jafn góðan markmann og Jajalo út en maður reynir að grípa tækifærið. Ég veit ekkert hvort verði sóttur markmaður eða hvort ég fái að vera í markinu áfram, það kemur bara í ljós.
Sagði Steinþór aðspurður út í hvort hann sjái fram á að fá fleiri tækifæri í byrjunarliðinu.
Athugasemdir