Fotbolti.net
01.07.26 - 00:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið Mexíkó og Ekvadors: Næstyngstur í sögu HM

Gilberto Mora

Gilberto Mora

Canon

Mynd: EPA

Mexíkó mætir Ekvador í 32-liða úrslitunum á HM í nótt. Byrjunarliðin eru komin. Liðin keppast um að mæta Englandi eða Kongó.

Jesus Gallardo, Johan Vazquez, Erik Lira og Raul Jimenez koma inn fyrir Israel Reyes, Mateo Garcia, Guillermo Martinez og Edson Alvarez.

Hinn 17 ára gamli Gilberto Mora er í byrjunarliði Mexíkó en hann er næst yngstur í sögu HM til að byrja leik í útsláttakeppninni. Mora er nákvæmlega 17 ára og 259 daga gamall en brasilíska goðsögnin er sá yngsti þegar hann var 17 ára og 239 daga gamall árið 1958.

Byrjunarlið Ekvador er óbreytt eftir glæsilegan 2-1 sigur á Þýskalandi sem tryggði liðinu sæti í 32-liða úrslitunum.
Mexíkó: Rangel, Sánchez, Montes, Vásquez, Gallardo, Mora, Lira, Romo, Alvarado, Jiménez, Quiñones

Ekvador: Galindez, Franco, Ordóñez, Pacho, Hincapié, Yeboah, Caicedo, Vite, Angulo, Plata, Valencia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.