Fotbolti.net
20.07.26 - 20:07
Elvar Geir Magnússon

Dómgæslan í aðalhlutverki í Krikanum - „Blikar alveg brjálaðir!“

Gunnar Freyr Róbertsson dæmir leikinn.

Gunnar Freyr Róbertsson dæmir leikinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Staðan er markalaus í hálfleik í viðureign FH og Breiðabliks í Bestu deildinni. Leikurinn hefur þó ekki verið tíðindalaus en Blikar eru ekki sáttir við dómgæsluna.

Um miðjan fyrri hálfleik var mark dæmt af Blikum, Ívar Örn Árnason skallaði boltann inn en brot var dæmt í teignum.

„Markið átti að standa sýnist mér. Dagur Örn sem kemur með sendinguna inn á teig úr aukaspyrnu og Ívar nær skallanum og stangar hann í nær. Það er síðan dæmt á Ásgeir Helga og sagt að hann hafi brotið á Tómasi Orra, við fyrstu sýn í endursýningum finnst mér bara nákvæmlega ekki neitt á þetta," skrifaði Haraldur Örn Haraldsson í textalýsingu frá Krikanum.
Lestu um leikinn: FH 0 - 0 Breiðablik
Blikar áttu að fá vítaspyrnu
Breiðablik hefði svo klárlega átt að fá vítaspyrnu á 37. mínútu en dómari leiksins, Gunnar Freyr Róbertsson, dæmdi ekkert.

„Blikar alveg brjálaðir! Hlynur tekur aukaspyrnuna og hún fer í vegginn, en Blikar þyrpast að dómaranum og biðja um hendi og víti. Jóhannes Kristinn með hendina lengst úti," skrifaði Haraldur.

Það er áhugaverður seinni hálfleikur framundan.


Dómgæslan í aðalhlutverki í Krikanum - „Blikar alveg brjálaðir!“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.