Fotbolti.net
01.07.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Deschamps hneigði sig fyrir Mbappe

Deschamps hneigði sig fyrir Mbappe
Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappe átti frábæran leik þegar Frakkland vann 3-1 sigur á Svíþjóð í 32-liða úrslitum á HM í gær.
Hann skoraði tvennu og hefur skorað 18 mörk á heimsmeistaramóti. Aðeins Lionel Messi hefur skorað fleiri eða 19 talsins. Þeir eru markahæstir á mótinu til þessa með sex mörk hvor.

Þá hefur Mbappe skorað tíu mörk í útsláttakeppni á HM en enginn hefur skorað jafn mörg mörk í sögunni. Brasilíski framherjinn Ronaldo skoraði átta mörk.

Didier Deschamps gaf Mbappe ekki séns á að ná í þrennuna en hann tók Mbappe af velli á 85. mínútu. Þegar Mbappe gekk af velli hneigði Deschamps sig fyrir honum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.