Fotbolti.net
21.07.26 - 10:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tíu í bann í Bestu

Ágúst Eðvald var mjög svekktur þegar hann sá gult gegn Víkingi.

Ágúst Eðvald var mjög svekktur þegar hann sá gult gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Tíu leikmenn í Bestu deildinni eru komnir í leikbann eftir leiki 15. umferðar í deildinni og verða því ekki með í komandi leikjum síns liðs.

Fjórir leikmenn missa af nágrannaslag KA og Þórs vegna uppsafnaðra áminninga. Það eru Þórsararnir Ágúst Eðvald Hlynsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson og KA-mennirnir Jeppe Pedersen og Birgir Baldvinsson.

Valdimar Þór Ingimundarson verður ekki með Víkingi þegar Íslandsmeistararnir taka á móti Keflavík á föstudagskvöld og Muhamed Alghoul verður ekki með Keflvíkingum.

Omar Sowe fékk að líta rauða spjaldið í leik ÍBV og KA, hann fékk rautt fyrir að reka höfuð sitt í Birgi Baldvinsson og spurning hvort hann fái meira en einn leik í bann. Milan Tomic fékk þá sitt sjöunda gula spjald hjá Eyjamönnum og þeir verða ekki með gegn Breiðabliki næsta mánudagskvöld.
Tómas Orri Róbertsson hefur fengið sjö gul spjöld í liði FH og verður ekki með liðinu gegn Fram á útivelli á sunnudag.

Bjarni Mark Antonsson fékk þá að líta tvö gul og þar með rautt hjá Val gegn Fram og hann missir af leik Vals og Stjörnunnar í byrjun næsta mánaðar. Valur spilar ekki um næstu helgi vegna þátttöku sinnar í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

16. umferðin í Bestu
föstudagur 24. júlí
20:00 Víkingur R.-Keflavík (Víkingsvöllur)

sunnudagur 26. júlí
19:15 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)
19:15 ÍA-Stjarnan (ELKEM völlurinn)

mánudagur 27. júlí
18:00 Breiðablik-ÍBV (Eikarvöllurinn)
19:15 KA-Þór (Greifavöllurinn)
Omar Sowe fékk að líta rauða spjaldið.

Omar Sowe fékk að líta rauða spjaldið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.