Fotbolti.net
01.07.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Haaland hreinskilinn: Mjög litlir möguleikar gegn Brasilíu

Haaland hreinskilinn: Mjög litlir möguleikar gegn Brasilíu
Canon

Mynd: EPA

Norski framherjinn Erling Haaland hefur ekki verið hræddur við að vera hreinskilinn í viðtölum á HM.

Noregur tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum eftir sigur á Senegal í 2. umferð riðlakeppninnar. Liðið mætti Frakklandi í lokaumferðinni en Stale Solbakken gerði tíu breytingar á liðinu og Haaland var ónotaður varamaður.
Haaland sagði fyrir leikinn að Frakkar myndu að öllum líkindum vinna leikinn og fara alla leið í keppninni. Frakkar unnu leikinn sannfærandi 4-1.

Haaland tryggði 2-1 sigur Noregs gegn Fílabeinsströndinni í 32-liða úrslitum í gær en liðið mætir Brasilíu í 16-liða úrslitunum.

Haaland var spurður að því hversu mikla möguleika Noregur ætti gegn Brasilíu.

„Mjög litla," sagði Haaland einfaldlega.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.