James og Quansah ekki með í dag

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er bakvarðakrísa í enska landsliðshópnum. Reece James og Jarrel Quansah eru ekki klárir í slaginn fyrir leikinn gegn Kongó í 32-liða úrslitum á HM í dag.
James meiddist í markalausu jafntefli gegn Gana í 2. umferð riðlakeppninnar. Miðvörðurinn Quansah byrjaði í hægri bakverðinum gegn Panama í lokaumferð riðilsins en þurfti að fara af velli.
Thomas Tuchel hefur staðfest að þeir eru ekki klárir í slaginn fyrir leikinn gegn Kongó sem hefst klukkan 16 í dag.
Djed Spence kom inn á fyrir Quansah en Ezri Konsa getur einnig leyst stöðuna. Konsa hefur byrjað alla leiki liðsins til þessa í miðverði.