Fotbolti.net
01.07.26 - 00:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klukkutíma seinkun í Mexíkó vegna veðurs

Stuðningsmennirnir í skjóli

Stuðningsmennirnir í skjóli

Canon

Mynd: EPA

Mexíkó og Ekvador áttu að hefja leik í 32-liða úrslitunum á HM klukkan eitt í nótt en það er búið að fresta leiknum um klukkutíma vegna veðurs.

Veðrið var til umræðu fyrir mótið og margir voru hræddir um að það myndi hafa slæm áhrif.
Það er þrumuveður í nágrenni við völlinn í Mexíkóborg og það er því ekki hægt að hefja leik fyrr en það hættir. Það er búið að gefa það út að leiknum er frestað um klukkutíma.

Þetta er í annað sinn á mótinu sem tafir hafa orðið á leik. Frakkland og Írak áttust við í riðlakeppninni en það varð töf á því að seinni hálfleikur gæti hafist vegna þrumuveðurs í Philadelphia.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.