sun 01. ágúst 2021 22:19
Victor Pálsson
Staðfestir tilboð í Locatelli - „Vissir um að þetta sé rétt upphæð"
Mynd: EPA
Juventus er búið að bjóða í miðjumanninn Manuel Locatelli sem spilar með Sassuolo á Ítalíu.

Þetta segir Pavel Nedved, varaforseti Juventus, en ítalska liðið hefur sýnt Locatelli mikinn áhuga í þessum glugga.

„Við ræddum við Sassuolo og buðum í hann upphæð sem við teljum henta í þessum kringumstæðum miðað við hvernig COVID hefur haft áhrif á gluggann," sagði Nedved.

„Við erum vissir um að þetta tilboð sé gott og að upphæðin sé rétt. Þegar þú vilt leikmann og leikmaðurinn vil þig þá er staðan skýr."

Loctelli var frábær með ítalska landsliðinu á EM í sumar en liðið vann England að lokum í úrslitunum.

Um er að ræða 23 ára gamlan miðjumann sem hefur spilað 67 deildarleiki á tveimur árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner