Greenwood fer ekki til Lazio - Hvað verður um hann?

Mason Greenwood.

Mynd: Getty Images

Mason Greenwood.

Mynd: Getty Images
Mason Greenwood var orðaður við Lazio fyrr í dag en hann fer ekki þangað eftir að félagaskiptaglugginn á Ítalíu lokaði núna klukkan 18:00.
Greenwood var handtekinn í byrjun árs í fyrra og ákærður fyrir af lögreglu fyrir tilraun til nauðgunar og ofbeldi í garð kærustu sinnar. Málið var látið niður falla fyrr á þessu ári en þó telja margir að ljóst sé að Greenwood sé sekur um kynferðisofbeldi.
Hann verður ekki áfram í herbúðum Man Utd þó kærurnar hafi verið felldar niður.
Lazio ræddi við umboðsmann Greenwood í dag en það gekk ekki upp á endanum. Staðarmiðillinn La Lazio Siamo Noi segir að tvær ástæður séu fyrir því: Félagið óttaðist viðbrögðin sem félagaskiptin hefðu fengið og þá var Maurizio Sarri, stjóri liðsins, ekki hrifinn af hugmyndinni. Sarri var hræddur um það hvernig áhrif Greenwood myndi hafa á hópinn og það truflaði hann að leikmaðurinn sé ekki búinn að spila í næstum tvö ár.
Það verður áhugavert að sjá hvað gerist hjá Greenwood en framtíð hans er ekki hjá Manchester United.