Fotbolti.net
15.11.26 - 12:11
Elvar Geir Magnússon

Ísland átta sinnum sigurstranglegri gegn bitlausum Lúxemborgurum

Orri Steinn Óskarsson.

Orri Steinn Óskarsson.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á morgun á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.

Það er ekki mikið sjálfstraust í Lúxemborgurum sem hafa tapað síðustu fjórum leikjum án þess að skora mark. Þeir hafa verið algjörlega bitlausir og veðbankar búast við mjög öruggum íslenskum sigri.
Landsliðið mætt heim í kuldann - Ekkert frost í vellinum
TENGT EFNI

Landsliðið mætt heim í kuldann - Ekkert frost í vellinum


Epicbet er með stuðulinn 1,27 á sigur Íslands en 10,20 á að Lúxemborg vinni. Sigurlíkur Íslands eru því rúmlega átta sinnum meiri en að gestirnir fagni sigri undir flóðljósunum. Stuðullinn á jafntefli er 5,66.

Jafntefli dugar Íslandi til að vinna riðilinn vegna öflugrar markatölu og þá er ljóst að Ísland endar alltaf í efsta sæti ef Eistland vinnur ekki Búlgaríu í leik sem fram fer á sama tíma.

Það er mikilvægt fyrir Ísland að sigra á morgun af fleiri ástæðum en bara að tryggja sér upp í B-deild. Með því að vinna riðilinn verðum við í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni EM í byrjun desember og sigur styrkir stöðu okkar þegar kemur að möguleika á bakdyraleið á EM ef við náum ekki sæti í gengnum undankeppnina.
Ísland átta sinnum sigurstranglegri gegn bitlausum Lúxemborgurum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.