Fotbolti.net
15.11.26 - 11:06
Brynjar Ingi Erluson

Trent ekki á leið aftur til Liverpool

Trent ekki á leið aftur til Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Liverpool er ekki í viðræðum við Real Madrid um að fá enska bakvörðinn Trent Alexander-Arnold aftur til félagsins.
Segja Liverpool í sambandi við bróður Trent
TENGT EFNI

Segja Liverpool í sambandi við bróður Trent

Trent hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Real Madrid síðan Jose Mourinho tók við liðinu síðasta sumar og hefur Englendingurinn verið orðaður við endurkomu til Liverpool.

Erfið byrjun hans hjá Madrídarliðinu varð til þess að hann missti af sæti í enska landsliðshópnum fyrir HM í sumar, en Mourinho hefur frekar kosið að nota Denzel Dumfries eða Federico Valverde í hægri bakverðinum.

Trent hefur aðeins spilað átta leiki á tímabilinu og samtals um 435 mínútur. Í kjölfarið fóru af stað sögusagnir um að Liverpool væri komið í viðræður við bæði leikmanninn og Real Madrid um mögulega endurkomu hans á Anfield.

Ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir hins vegar ekkert hæft í þeim fregnum.

„Komum einu á hreint. Það er ekkert í gangi milli Trent Alexander-Arnold, Real Madrid og Liverpool. Það er einfaldlega ekkert í gangi þar.“

„Trent ber ómælda virðingu fyrir Liverpool og elskar félagið, en sá kafli er að baki. Hann einbeitir sér alfarið að Real Madrid og það hefur hvorki verið haft samband né farið fram neinar viðræður við Liverpool,“
sagði Romano við DAZN.

Stuðningsmenn Liverpool eru þó ekki á einu máli um hvort þeir vilji fá Trent aftur, enda voru margir ósáttir við hvernig hann yfirgaf félagið. Hann ákvað að framlengja ekki samning sinn og grunaði marga að hann hefði verið búinn að ákveða að fara til Real Madrid löngu áður en það varð opinbert, ekki síst eftir að fregnir bárust af því að hann hefði verið farinn að læra spænsku.

Real Madrid greiddi á endanum 10 milljónir evra fyrir Trent til að fá hann til félagsins fyrir heimsmeistaramót félagsliða, sem hófst í júní. Samningur hans við Liverpool átti annars að renna út um mánaðamótin.
Trent ekki á leið aftur til Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.