15.11.26 - 13:58
Brynjar Ingi Erluson
Sex leikir í röð án taps hjá Hafrúnu

Hafrún Rakel lék allan leikinn með Bröndby

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Tveir leikir fóru fram í úrvalsdeild kvenna í Danmörku í dag.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir var í byrjunarliði Bröndby sem gerði markalaust jafntefli við ASA Aarhus.
Bröndby hefur nú leikið þrjá deildarleiki í röð án taps og er taplaust í síðustu sex leikjum sínum í öllum keppnum. Liðið situr í fjórða sæti deildarinnar með 28 stig.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir sat allan tímann á varamannabekk FCK sem tapaði 1-0 fyrir Midtjylland. FCK er í næstneðsta sæti deildarinnar með tíu stig.