15.11.26 - 10:51
Brynjar Ingi Erluson
„Verður erfitt fyrir Saliba að hafna Real Madrid“

William Saliba

Mynd: EPA

Morgan Schneiderlin lék með Saliba hjá Nice

Mynd: EPA

William Saliba

Mynd: EPA
Morgan Schneiderlin, fyrrum liðsfélagi franska miðvarðarins William Saliba, telur að erfitt verði fyrir hann að hafna Real Madrid ef spænska stórliðið bankar upp á.
Schneiderlin og Saliba léku saman hjá Nice og var það þar sem fyrrum miðjumaðurinn hreifst af hæfileikum unga varnarmannsins.
Saliba er í dag einn besti miðvörður heims og varð Englandsmeistari með Arsenal á síðustu leiktíð, auk þess sem liðið komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Hann hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid undanfarna mánuði og telur Schneiderlin að það gæti reynst erfitt fyrir hann að hafna spænska stórliðinu.
„William Saliba til Real Madrid? Það er eitthvað sem hann þarf að ákveða sjálfur. Það er ekki mitt að segja hvort hann eigi að vera áfram hjá Arsenal eða fara til Madrídar, en það sem ég veit eftir að hafa spilað með honum er að hann er frábær miðvörður með einstakt hugarfar og vill alltaf bæta sig.“
„Hann er að koma til baka eftir langvarandi meiðsli, en stærsta spurningin snýr að Arsenal. Ef félagið missir Saliba, hvern ætlar það þá að fá í staðinn? Það eru örfáir miðverðir í heiminum sem geta skilað sömu frammistöðu og hann,“ sagði Schneiderlin.
Schneiderlin segist hafa séð það strax á sínum tíma hjá Nice að Saliba ætti eftir að verða einn eftirsóttasti varnarmaður heims.
„Ég sagði fyrir mörgum árum, þegar hann var að spila fyrir Nice, að ef ég væri stórt félag myndi ég kaupa hann strax, því eftir því sem liði á ferilinn yrði verðmiðinn einfaldlega of hár.“
„Hann er ótrúlegur leikmaður að hafa í liðinu, en þegar kemur að svona ákvörðun eru aðeins örfá félög í heiminum sem erfitt er að hafna á ferlinum og Real Madrid er eitt þeirra,“ sagði Schneiderlin við ComeON.