Fotbolti.net
15.11.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Sendi skemmtilega gervigreindarmynd til Cucurella

Sendi skemmtilega gervigreindarmynd til Cucurella
Canon

Mynd: EPA

Vinstri bakvörðurinn Marc Cucurella og hægri kantmaðurinn Lamine Yamal eru liðsfélagar í spænska landsliðinu en andstæðingar í spænska boltanum þar sem þeir leika fyrir Real Madrid og Barcelona.
Húðflúraði landsliðsþjálfarann á öxlina
TENGT EFNI

Húðflúraði landsliðsþjálfarann á öxlina

Þeir eiga góðan vinskap í landsliðinu en þegar þeir mætast í El Clásico er ekkert gefið eftir. Real Madrid hafði betur í síðasta fjandslagnum í lok október og tókst Cucurella að halda landsliðsfélaga sínum niðri í þeim leik þar sem hann fær alltaf það hlutverk að passa Yamal þegar risaveldin mætast.

„Ég sagði ekkert við Lamine í El Clásico slagnum, ég hafði ekkert að segja. Við spiluðum góðan leik og unnum, flóknara er það ekki. Ég kýs að hafa hljótt og sinna vinnunni minni," segir Cucurella, sem lék allan leikinn í sigri gegn Tékklandi í fyrsta leik í landsleikjahlénu. Yamal var ekki með vegna smávægilegra meiðsla, en búast má við að þeir spili báðir næsta leik - risaslag gegn Englandi.

Cucurella svaraði ýmsum spurningum og ræddi lífið hjá Real Madrid undir stjórn José Mourinho. Liðið er að gera frábæra hluti undir leiðsögn Portúgalans og er búið að sigra alla leiki nema tvo í öllum keppnum það sem af er tímabils.

„Stemningin er mjög góð, við erum með ótrúlega sterkt lið hérna. Það sést langar leiðir hversu mikilvægur Arda Güler er fyrir okkur, ég elska hann. Ef Vinícius Júnior kemst aftur í sitt besta form þá verðum við óstöðvandi lið. Að mínu mati erum við besta liðið í Evrópu í dag.

„José Mourinho er skemmtilegur. Hann sendi mér gervigreindarmynd um daginn með andlitinu sínu húðflúruðu á brjóstkassann minn."


Eins og frægt er lét Cucurella húðflúra andlitið á spænska landsliðsþjálfaranum Luis de la Fuente á öxlina eftir að Spánverjar unnu HM í sumar.
Sendi skemmtilega gervigreindarmynd til Cucurella
Canon

Mynd: EPA

Sendi skemmtilega gervigreindarmynd til Cucurella
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid12+1328
4Betis12+526
5Real Sociedad12+122
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Villarreal12+215
9Deportivo12+115
10Racing Santander12-1314
11Celta12013
12Alaves12-213
13Espanyol12-112
14Vallecano11-612
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Levante12-511
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.