Fotbolti.net
15.11.26 - 13:07
Brynjar Ingi Erluson

Botnar ekkert í fréttum um ósætti við Mbappe

Zinedine Zidane

Zinedine Zidane

Canon

Mynd: EPA

Zinedine Zidane, þjálfari franska landsliðsins, hefur vísað á bug fregnum um að ósætti sé á milli hans og Kylian Mbappe, fyrirliða liðsins.
Mbappe var ekki með Frökkum í 3-1 tapinu gegn Ítalíu á dögunum vegna smávægilegra meiðsla, en hann verður klár í slaginn gegn Tyrklandi.

Franskir fjölmiðlar hafa fjallað um meint ósætti milli Zidane og Mbappe, en þjálfarinn segir ekkert hæft í þeim fregnum.

„Ég botna ekkert í því sem hefur verið skrifað. Ég ætla ekki að fara út í þessar umræður, en samband okkar er fullkomið, bæði frá hans sjónarhóli og mínum. Ég get ekki stjórnað því sem er sagt, en það er auðvitað pirrandi að heyra svona hluti,“ sagði Zidane.

Zidane segir endurkomu Mbappe skipta gríðarlega miklu máli fyrir franska landsliðið og staðfesti að fyrirliðinn verði í byrjunarliðinu gegn Tyrkjum.

„Auðvitað breytir það öllu. Við viljum miklu frekar hafa hann með okkur en vera án hans,“ sagði þjálfarinn.

Frakkar eru í öðru sæti A-riðilsins með tíu stig, jafnmörg og Ítalía sem er á toppnum með betri markatölu og stöðu í innbyrðisviðureignum. Frakkar eiga möguleika á að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar með hagstæðum úrslitum gegn Tyrkjum.
Mbappe verður með gegn Tyrkjum í kvöld

Mbappe verður með gegn Tyrkjum í kvöld

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.