15.11.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Líkur á að Jón Gísli fari þó að tilboð hafi ekki borist

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur írska félagið Shelbourne mikinn áhuga á því að fá Jón Gísla Eyland Gíslason í sínar raðir frá ÍA.
Albert Brynjar Ingason sagði frá því í Dr. Football á föstudag að Jón Gísli væri á leið til félagsins, færi út í vikunni, en samkvæmt heimildum Fótbolta.net er það ekki frágengið, ÍA hefur ekki fengið kauptilboð í bakvörðinn sem er samningsbundinn Skagamönnum.

Áhuginn er þó mikill og samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru menn nokkuð samhuga um að Jón Gísli fái tækifærið til að fara erlendis.
Samkvæmt styrkleikalista UEFA, sem reiknar stig út frá árangri liða í Evrópukeppnum, er Besta deildin 31. sterkasta deild Evrópu en sú írska er í sæti neðar.
Shelbourne endaði í 4. sæti írsku deildarinnar á tímabilinu og í þriðja sæti 2025. Þar er tíu liða deild og fjórföld umferð. Liðið hefur 14. sinnum orðið írskur meistari og það síðast 2024.
Shelbourne hefur tvisvar sinnum mætt íslenskum liðum í Evrópueinvígi. ÍA vann írska liðið samanlagt 6-0 árið 1995 en Shelbourne sló út KR í forkeppni Meistaradeildarinnar sumarið 2004, einvígið endaði 2-2 en Shelbourne fór áfram á útivallarmörkum.
Jón Gísli er fæddur 2002 og hefur verið hjá ÍA frá 2019 en þá kom hann frá Tindastóli. Síðasta vetur sá hann, ásamt Viktori Jónssyni, til þess að ÍA vann pílumót Fótbolta.net. Eftir tímabilið 2024 var áhugi á honum frá sænska félaginu Degerfors.
Í sumar byrjaði hann 19 leiki í Bestu deildinni, skoraði eitt mark og lagði upp fjögur þegar ÍA endaði í 4. sæti deildarinnar. Hann er með samning við ÍA út næsta tímabil.
Í sama þætti sagði Albert frá því að Afturelding hefði hafnað tilboði Shelbourne í hollenska sóknarmanninn Bart Kooistra. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Heracles, topplið hollensku B-deildarinnar, sýnt honum áhuga.