Manchester félögin fylgjast með Trincao - Liverpool sýnir þremur Ajax mönnum áhuga - Everton vill fá Henrique
   fim 01. desember 2022 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunni Birgis spáir í Kosta Ríka - Þýskaland
Gunnar Birgisson.
Gunnar Birgisson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er ekkert lið komið áfram í E-riðlinum fyrir leiki kvöldsins í þeim riðli. Það eru tveir síðustu leikirnir í riðlinum.

Þýskaland verður að vinna Kosta Ríka til að eiga möguleika á því að komast áfram. Ef Þýskaland vinnur en Spánn tapar á móti Japan ráðast úrslit á markatölu og þar eru Spánverjar í bílstjórasætinu. Ef Þýskaland vinnur en Spánn gerir jafntefli við Japan þá ráðast úrslit á markatölu.

Gunnar Birgisson, sem hefur slegið í gegnum að lýsa á leikjum á þessu móti fyrir RÚV, spáir í leik Þýskalands og Kosta Ríka.

Kosta Ríka 1 - 4 Þýskaland
Kosta Ríka kemst yfir í þessum og Þjóðverjar munu um leið kalla eftir höfðinu á Flickaranum. Arsenal goðsögnin Gnabry og Musiala ná hins vegar að bjarga honum og vonum Þjóðverja sömuleiðis í þessari keppni með tveimur mörkum hvor.




Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner