Sjáðu atvikið: Almiron fékk beint rautt fyrir að setja hönd fyrir munninn

Miguel Almiron er fyrrum leikmaður Newcastle á Englandi.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Miguel Almiron er fyrrum leikmaður Newcastle á Englandi.

Mynd: EPA
Miguel Almiron, landsliðsmaður Paragvæ, fékk að líta rauða spjaldið í leik liðsins gegn Tyrklandi í nótt. Spjaldið fékk hann í uppbótartíma fyrri hálfleiks fyrir að brjóta reglu sem sett var fyrir mótið.

TENGT EFNI
HM: Lánlausir Tyrkir úr leik eftir tap gegn tíu Paragvæjum
Leikurinn var stopp vegna þess að leikmaður Paragvæ sat á vellinum og lét Almiron einhver orð falla við Tyrkjann Mert Muldur. Þegar hann gerði það var hann með aðra höndina fyrir munninum svo ekki sæist hvað hann sagði. Tyrkinn benti dómurunum strax á það og eftir að hafa skoðað atvikið aftur gaf Ivan Berton, dómari leiksins, Almiron rauða spjaldið.
Það kom ekki að sök þar sem Paragvæjar náðu að þrauka manna færri og unnu frækinn 1-0 sigur á Tyrkjum. Með því er Paragvæ komið með þrjú stig og er á leið í úrslitaleik við Ástralíu um annað sætið í riðlinum. Tyrkir eru hins vegar án stiga og úr leik í keppninni fyrir lokaumferðina í riðlinum.
Nýja reglan: Bannað að halda fyrir munninn
Þegar leikmenn eru að tjá sig mega þeir ekki halda fyrir munninn líkt og Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, gerði í leik gegn Real Madrid. Vinícius Júnior sakaði hann um kynþáttafordóma.
Leikmenn sem halda fyrir munninn í slíkum samskiptum eiga að fá rautt. Ef um eðlileg og vinaleg samskipti er að ræða mega menn hinsvegar halda fyrir munninn.

? BIEN EXPULSADO ???????? EN EL MUNDIAL 2026 ????
— Rodrigo Velis (@Rodri_velis) June 20, 2026
Almirón ???????? se convirtió en uno de los primeros futbolistas sancionados bajo la nueva normativa que castiga el hecho de taparse la boca durante una confrontación o intercambio con un rival.
El VAR llamó al profe Iván Barton ???????? para… pic.twitter.com/VlfeYwIzfS
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

Mynd: EPA