Fotbolti.net
20.06.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sér fyrir sér þrjár breytingar á franska liðinu

Sér fyrir sér þrjár breytingar á franska liðinu
Canon

Mynd: EPA

Frakkland hóf leik á HM þann 16. júní með 3-1 sigri á Senegal. Kylian Mbappe skoraði tvennu og Bradley Barcola skoraði eitt.

Frakkar eru með mjög ógnvænlega sóknarlínu en Michael Olise, Ousmane Dembélé, Desire Doué og Mbappé byrjuðu allir gegn Senegal.

Frabrice Hawkins, blaðamaður hjá RMC, telur að Didier Deschamps muni gera þrjár breytingar á liðinu fyrir leikinn gegn Írak á mánudaginn. Sigur getur tryggt liðinu sæti í 32-liða úrslitum.

Hawkins telur að Barcola komi inn fyrir Doue í framlínuna, Lucas Digne inn fyrir Theo Hernandez í vörnina og Manu Kone inn fyrir Aurelien Tchouameni á miðjuna.

Mögulegt byrjunarlið: Maignan - Koundé, Upamecano, Saliba, Digne - Koné, Rabiot - Dembélé, Olise, Barcola - Mbappé.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.