Brynjar Björn: Jafnteflislykt af þessum leik

Brynjar Björn var vonsvikin eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Brynjar Björn var vonsvikin eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Njarðvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og settu tóninn strax frá fyrstu mínútu. Eftir því sem leið á leikinn jafnaðist hann þó út, en þrátt fyrir það voru heimamenn líklegri til að skora og sköpuðu sér mun fleiri færi en Leiknismenn.
„Bara svekkjandi. Við vorum einhvern veginn inni í leiknum allan tímann og svona reyndum og reyndum. Við komumst voða lítið áfram. Hrós á varnarleik Njarðvíkur í rauninni. Við vorum nú sérstaklega hérna í seinni hálfleik meira og minna með boltann en áttum erfitt að koma okkur í stöður og skapa okkur færi.´´ Sagði Brynjar svekktur við Fótbolti.net eftir leik.
Þetta var mikill baráttuleikur á erfiðum velli og leikurinn bar þess merki.
„Þeir vinna leikinn 1-0. Það er svo sem ekkert meira um það að segja, hvort sem það er sanngjarnt eða ekki, en það var svona pínu jafnteflislykt af þessum leik, finnst mér.´´
Næsti leikur Leiknis er á heimavelli þar sem liðið tekur á móti ÍR í sannkölluðum Breiðholtsslag. Búast má við hörkuleik og góðri stemningu á vellinum þegar þessi nágrannaslagur fer fram.
„Ég býst við því, fastlega. Þetta er svona leikurinn sem ég er búinn að vera að bíða eftir og bara gott action og góðum fótbolta uppi á Leiknisvelli.´´




