Fotbolti.net
20.06.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Óskar Hrafn: Kommon Albert, hættu þessu

Óskar Hrafn: Kommon Albert, hættu þessu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var líf og fjör í HM kvöldi á RÚV í gær þar sem Óskar Hrafn Þorvaldsson og Albert Brynjar Ingason tókust á.

Bandaríkin tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitum í gærkvöldi með 2-0 sigri á Ástralíu.
Óskar og Albert rökræddu um nokkur vafaatriði þar sem Albert taldi m.a. að Chris Richards og Antonee Robinson, leikmenn bandaríska liðsins hafi brotið af sér.

„Ég er enginn stuðningsmaður Bandaríkjanna en kommon, hættu þessu," sagði Óskar Hrafn.

Albert tjáði þá ást sína á Ástralíu og áströlsku sápuópreunni Nágrannar sem fór ekki vel í Óskar Hrafn sem er þjálfari KR í Bestu deildinni.

„Ég hlakka til að sjá það í sumar þegar Aron Sig er tekinn niður, kemur inn í teiginn og það er stigið ofan á hann og hann nánast fer úr skónum. Ert þú bara: 'Þarna á minn maður að standa í lappirnar'," sagði Albert.

„Ég treysti dómara leiksins til að taka rétta ákvörðun. Ég hef alltaf sagt þetta, ég treysti dómara leiksins 100%," sagði Óskar Hrafn.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.