Fotbolti.net
20.06.26 - 13:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Viðar Örn og Einar Bjarki tóku lagið fyrir leik

Viðar Örn og Einar Bjarki tóku lagið fyrir leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Magni fær Selfoss í heimsókn í 2. deild klukkan 14 í dag. Það lá vel á leikmönnum Selfoss fyrir leikinn.

Selfoss birti myndband í 'story' á Instagram í dag þar sem frændurnir Viðar Örn Kjartansson og Einar Bjarki Einarsson tóku lagið.
Einar Bjarki spilaði á píanó og Viðar Örn söng lagið Viva La Vida með Coldplay af mikilli innlifun.

Viðar Örn hefur verið sjóðandi heitur undanfarið. Hann hefur skorað fimm mörk í sex leikjum í deildinni. Einar Bjarki hefur einnig komið við sögu í sex leikjum.

Selfoss er í 3. sæti 2.deildar með 15 stig, stigi á eftir Kára og Haukum. Magni er á botninum með fjögur stig eftir átta umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.