Fotbolti.net
20.06.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Zlatan telur að Bandaríkin geti unnið HM

Zlatan telur að Bandaríkin geti unnið HM
Canon

Mynd: EPA

Bandaríkin eru búin að tryggja sér sæti í 32-liða úrslitum á HM eftir 2-0 sigur á Ástralíu í gær.
Pochettino: Þurfum á Pulisic að halda ef við ætlum að vinna mótið
TENGT EFNI

Pochettino: Þurfum á Pulisic að halda ef við ætlum að vinna mótið

Liðið hefur spilað mjög vel en Bandaríkin unnu Paragvæ 4-1 í fyrstu umferð.

Christian Pulisic var ekki með liðinu í gær vegna meiðsla en Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, vonaðist til að hann verði klár sem fyrst. Hann sagði að liðið þyrfti á honum að halda til að verða heimsmeistari.

Svíinn Zlatan Ibrahimovic er sérfræðingur á bandarísku sjónvarpsstöðinni FOX í kringum HM. Hann var spurður að því hvort Bandaríkin gætu orðið heimsmeistarar og hann svaraði einfaldlega: Já.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.