Fotbolti.net
20.06.26 - 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Mun gera allt sem ég get til að láta fólk gleyma þessu móti"

„Mun gera allt sem ég get til að láta fólk gleyma þessu móti"
Canon

Mynd: EPA

Tyrkland er úr leik á HM eftir tap gegn Paragvæ í nótt. Liðið tapaði gegn Ástralíu í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Liðið tapaði gegn Ástralíu 2-0 og og mistókst að skora aftur í 1-0 tapi gegn Paragvæ þar sem liðið var manni fleiri allan seinni hálfleikinn eftir að Miguel Almiron fékk rautt spjald fyrir að hylja munninn.
HM: Lánlausir Tyrkir úr leik eftir tap gegn tíu Paragvæjum
TENGT EFNI

HM: Lánlausir Tyrkir úr leik eftir tap gegn tíu Paragvæjum

Arda Guler, miðjumaður Real Madrid, segir að tyrknesku leikmennirnir skammist sín.

„Við skömmumst okkar og biðjum fólkið okkar afsökunar. Við spilum fyrir mjög stór lið og þurfum að sýna það á vellinum. Við gátum ekki skorað í tveimur leikjum," sagði Guler.

„Ég mun gera allt sem ég get með landsliðinu til að láta fólk gleyma þessu móti."
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.