2. deild: Kári á toppnum - Fjölnir og Hvíti riddarinn gerðu jafntefli

Matthías Daði Gunnarsson innsiglaði sigur Kára

Mynd: Aðsend

Matthías Daði Gunnarsson innsiglaði sigur Kára

Mynd: Aðsend
Kári er á toppnum í 2. deild eftir sigur á Þrótti Vogum í Vogunum í gær.
Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson sá til þess að Kári var með forystuna í hálfleik. Liðið bætti við þremur mörkum áður en Danny De Lorijn klóraði í bakkann fyrir Þrótt.
Kári er á toppnum með 16 stig eftir níu umferðir. Liðið er með jafn mörg stig og Haukar sem eiga leik til góða. Þróttur er með sjö stig í 11. sæti.
Egill Otti Vilhjálmsson kom Fjölni yfir gegn Hvíta riddaranum en Daníel Búi Andrésson jafnaði metin eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik og þar við sat.
Fjölnir er í 4. sæti með 14 stig en Hvíti riddarinn er með 11 stig í 8. sæti.

Þróttur V. 1 - 4 Kári
0-1 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('19 )
0-2 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('50 )
0-3 Benedikt Ísar Björgvinsson ('78 )
0-4 Matthías Daði Gunnarsson ('86 )
1-4 Danny De Lorijn ('88 )
Fjölnir 1 - 1 Hvíti riddarinn
1-0 Egill Otti Vilhjálmsson ('31 )
1-1 Daníel Búi Andrésson ('55 )
0-1 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('19 )
0-2 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('50 )
0-3 Benedikt Ísar Björgvinsson ('78 )
0-4 Matthías Daði Gunnarsson ('86 )
1-4 Danny De Lorijn ('88 )
Fjölnir 1 - 1 Hvíti riddarinn
1-0 Egill Otti Vilhjálmsson ('31 )
1-1 Daníel Búi Andrésson ('55 )
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 11 | +14 | 23 |
| 2 | Dalvík/Reynir | 11 | +6 | 20 |
| 3 | Selfoss | 11 | +2 | 19 |
| 4 | Kári | 11 | +9 | 17 |
| 5 | Kormákur/Hvöt | 11 | +12 | 16 |
| 6 | Fjölnir | 11 | +4 | 15 |
| 7 | Víkingur Ó. | 11 | -7 | 14 |
| 8 | KFA | 11 | +5 | 13 |
| 9 | Hvíti riddarinn | 11 | -4 | 12 |
| 10 | KFG | 11 | -16 | 12 |
| 11 | Magni | 11 | -17 | 11 |
| 12 | Þróttur V. | 11 | -8 | 10 |