Fotbolti.net
19.06.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alsír leggur fram formlega kvörtun vegna Messi

Alsír leggur fram formlega kvörtun vegna Messi
Canon

Mynd: EPA

Franski miðillinn L'Equipe greinir frá því að Alsír hafi lagt fram formlega kvörtun til FIFA vegna dómgsælunnar í leik liðsins gegn Argentínu í fyrstu umferð riðlakeppninnar á HM.

Lionel Messi var hetja Argentínu en hann skoraði þrennu í 3-0 sigri.
Alsíringar voru ósáttir við frammistöðu og viðhorf pólska dómarans Szymon Marciniak og VAR teymisins. Alsír telur að nokkrar ákvarðanir hafi verið gegn þeim.

Aðalatriðið var atvik í fyrri hálfleik þar sem Messi steig á Aïssa Mandi. Hann fékk ekki spjald og VAR steig ekki inn í.

Alsíringar vildu fá rautt spjald á Messi og telja að þessi ákvöðrun hafi haft afgerandi áhrif á flæði og útkomu leiksins.

Sjáðu atvikið hér
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.