Fotbolti.net
19.06.26 - 20:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bakslag hjá nýjasta leikmanni Liverpool

Bakslag hjá nýjasta leikmanni Liverpool
Canon

Mynd: Liverpool FC

Victor Munoz mun líklega ekki taka þátt í riðlakeppninni á HM með spænska landsliðinu vegna meiðsla.

Munoz var meiddur á kálfa fyrir mótið og spænska fótboltasambandið hefur greint frá því að hann hafi orðið fyrir frekari meiðslum í bataferlinu.
Munoz gekk til liðs við Liverpool frá Osasuna í gær en enska félagið borgaði tæplega 35 milljónir punda fyrir hann.

Hann er 22 ára gamall vængmaður sem átti frábært tímabil með Osasuna. Hann var í akademíu Barcelona á sínum tíma og spilaði fjóra leiki fyrir Real Madrid í fyrra.

Spánn hóf leik á HM með markalausu jafntefli gegn Grænhöfðaeyjum. Liðið mætir Sádi-Arabíu á sunnudaginn og Úrúgvæ þann 27. júní.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.