Sáttur Davíð Smári: Æfingavikan var þung og erfið

Davíð Smári sáttur með sigurinn í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Smári sáttur með sigurinn í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Völlurinn var þungur og erfiður fyrir bæði lið og leikurinn bar þess merki. Mikil barátta var á miðjunni og erfitt reyndist fyrir liðin að ná upp góðu flæði.
„Bara gríðarlega sterkur sigur, baráttusigur, svona liðsheildarsigur á þessu. Sköpuðum slatta í þessum leik, fáum gríðarlega gott færi bara strax eftir innan við mínútu og höldum áfram að skapa, gríðarlega þéttir til varnarlega og erfitt að brjóta okkur á bak aftur og mér fannst Leiknir kannski fá sitt fyrsta færi á 83. eða 84. mínútu. Þannig að bara heilt yfir sterkur og góður sigur á blautum og svolítið erfiðum velli í dag.´´ Sagði Davíð við fréttamann Fótbolti.net eftir leik.
Eftir tapið gegn Völsungi í síðustu umferð voru Njarðvíkingar staðráðnir í að svara fyrir sig. Þeir byrjuðu af miklum krafti, pressuðu hátt og leyfðu Leiknismönnum lítið svigrúm. Gestirnir áttu erfitt með að spila sig út úr pressunni og Njarðvík voru mun líklegri aðilinn framan af leik.
„Já, menn eru svekktir með frammistöðuna í síðasta leik og það í raun og veru bara nóg eldsneyti fyrir liðið í leikinn í dag Gríðarleg eftirsjá eftir síðasta leik og menn einhvern veginn staðráðnir í það að láta ekki svona já, mómentið eða heila leiki hérna líða hjá án þess að taka svolítið fast á hlutunum.´´
„Það var eiginlega bara nóg eldsneyti, ferðin heim eftir síðasta leik og æfingavikan var þung og erfið og menn einhvern veginn bara komnir með smá blóð á tennurnar". Sagði þjálfarinn við Fótbolti.net að lokum.




