Jóhann Kristinn: Við erum með besta markmann á landinu
Auglýsing

Jóhann Kristinn þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur og Víkingur áttust við í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í dag. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Þróttara sem skýtur þeim í undanúrslitin. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Jóhann Kristin Gunnarsson eftir góðan sigur.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Víkingur R.
Jóhann var ánægður eftir sigurinn sem tryggði liðinu sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.
„Ég er bara ánægður með að hafa unnið leikinn og komast áfram í undanúrslitin. Ég er ánægður með það.“
Hann lýsti leiknum sem dæmigerðum bikarleik þar sem baráttan var í fyrirrúmi.
„Þetta var týpískur 8-liða úrslitaleikur sem hafði bæði gæði og alls ekki gæði og mikla baráttu. Ég er ánægður með að við sýndum karakter og komum út úr þessu með sigur.“
Leikurinn bauð ekki upp á mörg dauðafæri og að mati Jóhanns voru Víkingar sterkari aðilinn framan af leik.
„Víkingar byrjuðu leikinn frábærlega, spiluðu megnið af fyrri hálfleik mjög vel og gerðu mörg áhlaup. En við erum með besta markmann á landinu og spiluðum varnarleikinn ágætlega. Víkingar voru ferskar og góðar, sérstaklega í fyrri hálfleik.“
Hann sagði jafnframt að þegar lið nýti ekki færin sín geti það reynst dýrt.
„Ef þú nýtir ekki færin þá áttu ekki mikið skilið. Ef þú sýnir karakter, þrautseigju og þolinmæði eins og við gerðum þá áttum við möguleika á að lauma inn einu marki.“
Það reyndist raunin þar sem eitt mark skildi liðin að í leikslok.
„Akkúrat eins og kom á daginn þá þurfti eitt mark. Stundum nærðu þér í þína heppni og ég held að við höfum gert það.“
Jóhann sagðist skilja vel vonbrigði Víkinga eftir leikinn, enda hefðu þær spilað vel stóran hluta hans.
„Á endanum geta Víkingar verið súrar og svekktar því þær spiluðu vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við sýndum hins vegar karakter og seiglu og þess vegna ætla ég að segja að við eigum þetta skilið. En ég skil alveg gremju Víkinga.“