Fotbolti.net
02.05.22 - 22:45
Stefán Marteinn Ólafsson

Gústi Gylfa: Þetta var bara algjör flugeldasýning

Auglýsing
Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnumanna.

Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnumanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stjörnumenn heimsóttu Víkinga á heimavelli hamingjunar í Víkinni í hreint ótrúlegum fótboltaleik þar sem níu mörk voru skoruð og þar af tvö sett af þrennum frá sitthvoru liðinu. 

„Fyrsta mómentið er bara að hrósa báðum liðum fyrir frábæran sóknarleik, níu mörk. Ég var búin að segja það að þetta yrði leikur sumarsins og ég var að spá í að taka það til baka en eftir þennan leik er erfitt að toppa þetta, þetta var þvílík frammistaða hjá báðum liðum," sagði Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnumanna eftir leikinn.

Þetta var bara algjör flugeldasýning. Bæði lið voru mjög hugrökk og vildu bara sækja mörk og sækja á mark andstæðingana. Það voru líka hérna fullt af færum. Skot í slá og skot í stöng og ég veit ekki hvað og hvað svo þessi leikur hefði alveg getað farið þess vegna 4-5 mörk í viðbót.

Stjörnumenn komust í þrígang í tveggja marka forystu í leiknum og viðurkenndi Gústi að það fór aðeins um hann.

„Jú maður varð það. Þetta var þannig leikur, það gat allt gerst í honum, eins og ég segi og hrósa aftur Víkingunum, koma sterkir til baka."

Nánar er rætt við Ágúst í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.