Maður dagsins á HM - Fékk verstu mögulegu einkunn

Ilgiz Tantashev fékk útreið í frönsku pressunni.

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Við veljum einstaklinga sem vekja athygli á mótinu en sá sem er maður dagsins fær ekki titilinn fyrir góða frammistöðu, því miður. Það er dómarinn Ilgiz Tantashev frá Úsbekistan sem dæmdi leik Frakklands og Paragvæ í gær.
Frakkar unnu leikinn 1-0 með marki Kylian Mbappe úr vítaspyrnu en paragvæska liðið hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir leiðinlegan leikstíl og ýmsar brellur til að reyna að hafa neikvæð áhrif á leikinn.

TENGT EFNI
Sjáðu HM mörkin: Mbappe skaut Frakklandi áfram
Franska blaðið L'Equipe gaf Tantashev dómara lægstu mögulegu einkunn, 1/10, og gaf honum þessa umsögn: „Hann klúðraði leiknum algjörlega og gaf leikmönnum Paragvæ engin spjöld."
Fleiri miðlar voru á sömu nótum og hann gerði Frakka mjög pirraða. Le Figaro segir Úsbekann engan veginn hafa ráðið við leikinn, tekið margar rangar ákvarðanir og fallið í gildrur paragvæska liðsins. Þrátt fyrir mörg gróf brot fékk enginn í Paragvæ spjald, á meðan þrír franskir leikmenn voru færðir til bókar.
Tantashev hefur fengið að heyra það á samfélagsmiðlum og Zlatan Ibrahimovic, sem er sérfræðingur Fox, segir að hann hefði gefið fjögur rauð spjöld ef hann hefði dæmt leikinn. Roy Keane sagði á Sky Sports að dómgæslan hafi verið 'fíaskó' og 'algjört grín'. Úsbekinn hafi ekki haft neina stjórn á leiknum.
FIFA hefur fengið gagnrýni fyrir að velja Tantashev á þennan leik en hann er að dæma á HM í fyrsta sinn. Þetta var þriðji leikur hans á mótinu, en væntanlega sá síðasti.