Fotbolti.net
05.07.26 - 13:30
Fótbolti.net

Lið og leikmaður 12. umferðar - Andri á flandri

Andri Freyr Jónasson er leikmaður umferðarinnar.

Andri Freyr Jónasson er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin
12. umferð Lengjudeildarinnar lauk í gær. Afturelding komst á toppinn í umferðinni og er með eins stigs forystu á Fylki sem er í öðru sæti. Þróttur féll niður í þriðja sæti.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Andri Freyr Jónasson - Grótta
Spilaði fyrstu 40 mínúturnar og skoraði bæði mörk Gróttu í 2-1 sigri gegn HK. Framlag hans skildi liðin að en hann þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik eftir höfuðhögg. Andri er kominn með sex mörk í deildinni í sumar.


Grótta á tvo aðra leikmenn í liði umferðarinnar. Það eru varnarmaðurinn Halldór Hilmir Thorsteinsson og miðjumaðurinn Grímur Ingi Jakobsson.

Afturelding vann 1-0 útisigur gegn ÍR þar sem Aron Elí Sævarsson var valinn maður leiksins. Skoraði eina mark leiksins af vítapunktinum strax í byrjun leiks. Axel Óskar Andrésson er einnig í úrvalsliðinu en þetta er í fjórða sinn sem hann er valinn á tímabilinu.

Máni Austmann Hilmarsson skoraði eitt af mörkum Fylkis sem vann 4-2 útisigur gegn Ægi. Maður leiksins var hinsvegar Jordan Adeyemo sem skoraði tvö fyrir Ægi.

Davíð Smári Lamude er þjálfari umferðarinnar eftir 1-0 sigur Njarðvíkur á Þrótti. Oumar Diouck skoraði sigurmarkið.

Anton Fannar Kjartansson var maður leiksins þegar Leiknir og Völsungur gerðu 1-1 jafntefli. Chriss-Albin Mörfelt var maður leiksins þegar Grindavík og Vestri gerðu markalaust jafntefli. Hjörvar Daði Arnarsson markvörður Grindavíkur er einnig í liði umferðarinnar.

Fyrri úrvalslið:
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Oumar Diouck.

Oumar Diouck.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding12+1625
2Fylkir12+624
3Þróttur R.12+1223
4Vestri13+221
5Leiknir R.12+219
6HK12+119
7Njarðvík12+317
8Grótta11-416
9ÍR12-711
10Grindavík11-310
11Völsungur12-118
12Ægir13-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.