Það er kominn hálfleikur í leik Manchester City og Liverpool. Staðan er hvorki meira né minna en 3-0 fyrir City.
Liverpool tryggði sér Englandsmeistaratitilinn fyrir viku og hefur væntanlega verið fagnað mikið innan leikmannahópsins síðustu daga. Það telur Cesc Fabregas, miðjumaður Mónakó, að minnsta kosti.
„Miðað við hvað þeir hljóta að hafa djammað mikið án þess að sofa síðustu þrjá daga þá finnst mér Liverpool vera að spila nokkuð vel," skrifaði Fabregas á Twitter.
Liverpool spilaði reyndar vel framan af fyrri hálfleik, en svo gekk City á lagið.
Það styttist í að seinni hálfleikurinn hefjist.
Considering they must have been partying without sleeping for the last 3 days, I think Liverpool are playing very well.
— Cesc Fàbregas Soler (@cesc4official) July 2, 2020
Athugasemdir