13.09.26 - 12:43
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo vill senda stuðningsmennina í ævilangt bann

Cristiano Ronaldo og Diogo Jota

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo og Diogo Jota

Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo, leikmaður Al Nassr í Sádi-Arabíu, hefur krafist viðbragða frá stjórnendum deildarinnar þar í landi um að senda stuðningsmenn í ævilangt bann fyrir söngva um Diogo Jota.

TENGT EFNI
Sungu nafn Diogo Jota til að taka Neves úr jafnvægi
Stuðningsmenn Al Taawoun sungu nafn Jota í átt að Ruben Neves úr stúkunni.
Jota var leikmaður Liverpool þegar hann lést í hræðilegu bílslysi fyrir rúmu ári síðan en hann var einnig liðsfélagi Neves og Ronaldo í portúgalska landsliðinu.
Neves og Jota voru bestu vinir og hefur missirinn tekið verulega á miðjumanninn.
Stuðningsmenn Al Taawoun reyndu allt til að koma Neves úr jafnvægi í leik liðsins gegn Al Hilal og brást Portúgalinn við söngvunum með því að benda til himins.
Að leik loknum sagði hann: „Ég vona bara að þeir fari ekki og biðji eftir því sem þeir gerðu.“
Hegðun stuðningsmannanna hefur vakið mikla reiði og vill Ronaldo ganga skrefinu lengra. Hann hefur krafist þess að þeir sem tóku þátt í söngvunum verði settir í ævilangt bann frá fótboltavöllum.
„Deildin verður að bregðast við og refsa stuðningsmönnum fyrir slíka hegðun. Þetta tengist ekki lengur fótbolta og það verða að vera takmörk. Fólk sem hagar sér svona á ekki að fá að stíga inn á leikvang aftur,“ skrifaði Ronaldo.

Cristiano Ronaldo has called for the Saudi Pro League to issue lifetime stadium bans for any fans involved after Ruben Neves appeared to be taunted by chants of his late friend and team-mate Diogo Jota during a match on Saturday.
— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) September 13, 2026
Footage widely circulated on social media, filmed… pic.twitter.com/J4A7PBoqxe