Fotbolti.net
13.09.26 - 23:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Var ekki mikið að pæla hvað var að gerast nema að setja hann í netið"

Auglýsing
„Var ekki mikið að pæla hvað var að gerast nema að setja hann í netið"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Það er geggjuð tilfinning að vera kominn í þennan úrslitaleik og eiga möguleika á að fara upp í Bestu deildina," sagði Guðmundur Tyrfingsson, leikmaður Fylkis, eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum um sæti i Bestu deildinni eftir sigur í einvíginu gegn HK.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 2 HK
Fylkir var með 1-0 forystu í hálfleik en HK skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og kom leiknum í framlengingu.

„Þeir ná þessu eina marki og við verðum smá litlir og þeir ná skriðþunga. En geggjaður karakter að halda áfram og vinna þetta í framlengingunni," sagði Guðmundur.

„Við þurfum að hafa þennan karakter í úrslitaleiknum því að við erum að fara mæta alvöru liði þar sem það er allt undir."

Þrjú rauð spjöld fóru á loft. Dominik Radic fékk rautt spjald í aðdragandanum að markinu hjá Guðmundi sem tryggði Fylki sætið í úrslitaleiknum. Radic taldi að Aron Snær Guðbjörnsson hafi brotið á sér og gaf honum olnbogaskot.

„Það er einhver hiti. Það er stuttu á milli Kópavogs og Árbæjar þannig það er alvöru hiti. Þetta skipti bæði okkur og HK miklu máli og að lokum unnum við þessa baráttu. Alvöru erkifjendaslagur og svona á þetta að vera á öllum leikjum. Þetta er sturlað," sagði Guðmundur.

„Var þetta ekki í sama augnabliki og ég skoraði? Ég var ekki mikið að pæla í því hvað var að gerast nema að setja hann í netið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.