Jakob Leó: Fáum urmul af færum í lokinn til að klára leikinn
Auglýsing

Jakob Leó Bjarnason þjálfari HK

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Jakob Leó Bjarnason þjálfari HK

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Jakob Leó Bjarnason þjálfari HK kom í viðtal eftir 1-1 jafntefli gegn Grindavík í 8. umferð Lengjudeildar kvenna.
Hvernig fannst þér leikurinn?
"Mér fannst hann svona kaflaskiptur, ég var ánægður með ákveðna kafla í leiknum þar sem að við náttúrulega stýrðum leiknum nánast allan tímann og áttum góða kafla en mér fannst við ógna þeim svona fullseint í leiknum og fáum urmul af færum í lokinn til að klára leikinn."
Hvað var planið ykkar í dag?
"Planið var bara að reyna að teygja á þeim, þær liggja mjög aftarlega og það er erfitt að brjóta þær á bak aftur og ekkert sérstaklega skemmtilegt, en það er þolinmæðisverk og mér fannst við gera það svona ágætlega, við hefðum getað gert það betur, sérstaklega í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik að þá fengum við opnanir og náum að teygja ágætlega á þeim."
Viðtalið við Jakob í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.