KA með 57 milljónir króna í verðbréfum

KA endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

KA endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Eignir KA stóðu í 95 milljónum króna í lok síðasta árs og lækkuðu örlítið á milli ára. Stærsta eign KA eru verðbréf, en félagið átti tæplega 57 milljónir króna í verðbréfum í árslok 2025. Þar á eftir er handbært fé næststærsta eign KA, tæplega fjórðungur eigna, og nam sú fjárhæð 26 milljónum króna.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 28. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Veltufjárhlutfall KA var 277,0% árið 2025 og lækkaði nokkuð hressilega á milli ára vegna hækkandi skulda. Síðustu fimm árin hefur veltufjárhlutfall KA verið 332,7% að meðaltali sem verður að teljast afar sterkt.
KA átti 26 milljónir króna í handbæru fé í lok síðasta árs en það lækkaði um tæplega 8,5 milljónir króna á milli ára. Handbært fé frá rekstri voru tæplega 2 milljónir króna í fyrra en árið áður hafði handbært fé til rekstrar verið tæpar 16 milljónir króna. Rekstrarhreyfingarnar voru því betri árið 2025 en það sem munar um eru fjárfestingarhreyfingarnar. Á liðnu ári keypti KA verðbréf fyrir 68 milljónir króna og eyddi 750 þúsund krónum í leikmannakaup. Þá seldi félagið verðbréf fyrir 45 milljónir og þar af leiðandi voru fjárfestingarhreyfingar neikvæðar um 23 milljónir króna. Þar að auki voru fjármögnunarhreyfingar jákvæðar um 13 miljónir króna vegna breytingar á skammtímalánum.
Smelltu hér til að skrá þig í fría vikuáskrift.





