Fotbolti.net
21.07.26 - 12:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skrifar frá: Umfjöllun

Ofbirta frá auglýsingaskiltum sem truflar leikmenn

LED skiltin fyrir ofan varamannabekkina.

LED skiltin fyrir ofan varamannabekkina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Undirritaður fór á Kaplakrikavöll í gær og horfði á leik FH og Breiðabliks í Bestu deildinni. Leikurinn hófst klukkan 19:15 og var lokið skömmu eftir klukkan 21.

Fyrir ofan varamannabekkina, framan á stúkunni, eru upplýst auglýsingaskilti sem áhorfendur heima í stofu sjá í útsendingum frá leikjum í Kaplakrika.
Lestu um leikinn: FH 0 - 0 Breiðablik
Nokkrar auglýsingar rúlla í gegnum leikinn og eru í nokkrar sekúndur í senn. Bakgrunnurinn á þeim er í mismunandi litum, bláar, hvíta o.s.frv..

Úr stúkunni varð undirritaður var við það þegar auglýsingarnar með hvíta bakgrunninum voru á skiltunum því svæðið í kringum hliðarlínuna á vellinum lýstist upp. Þetta varð greinilegra og greinilegra eftir því sem það fór að dimma í gærkvöldi.

Þetta hafði truflandi áhrif á undirritaðan og það sem verra er, þá tóku leikmenn einnig eftir þessu og það truflaði þá. FH-ingar þurfa eitthvað að skoða birtustigið á skiltunum sínum.

„Þetta er gjörsamlega galið. Sérstaklega þegar það líður á leikinn og það fer að dimma meira, þetta blindar mann alveg, sérstaklega þegar þetta fer úr dökkri auglýsingu yfir í hvítt. Þá er þetta bara eins og flóðljós beint í grillið á þér," sagði leikmaður við Fótbolta.net eftir leikinn.

Fleiri leikmenn hafa velt þessu fyrir sér, bæði eftir leikinn í gær og eftir leik FH og Vals í síðustu umferð.

„Þessi lýsing kemur allt í einu, flestar auglýsingarnar eru í lagi en þessar hvítu hafa áhrif," sagði annar leikmaður.

Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?

Skjáskot úr útsendingu SÝN Sport í gær.

Skjáskot úr útsendingu SÝN Sport í gær.

Canon

Mynd: Skjáskot/SÝN Sport

Ofbirta frá auglýsingaskiltum sem truflar leikmenn
Canon

Mynd: Skjáskot/SÝN Sport

Ofbirta frá auglýsingaskiltum sem truflar leikmenn
Canon

Mynd: Skjáskot/SÝN Sport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.