Fotbolti.net
21.07.26 - 22:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gavi: Argentínumenn eiga ekki að fá refsingu

Molina og Paredes réðust á Gavi

Molina og Paredes réðust á Gavi

Canon

Mynd: EPA

Spænski landsliðsmaðurinn Gavi hefur gert lítið úr slagsmálunum sem brutust út eftir úrslitaleik HM gegn Argentínu og fullyrðir að hann sjái enga þörf á að setja argentínska leikmenn í bann.

Alþjóðafótboltasambandið FIFA hefur staðfest að það muni rannsaka hegðun argentínumanna. Nahuel Molina, Thiago Almada, Leandro Paredes voru meðal leikmanna sem voru í slagsmálunum.
Sjáðu hasarinn eftir úrslitaleikinn
TENGT EFNI

Sjáðu hasarinn eftir úrslitaleikinn

Þessi 21 árs miðjumaður Barcelona tjáði við athöfn sem haldin var til heiðurs honum og liðsfélaga sínum Fabian Ruiz í heimabæ þeirra, Los Palacios y Villafranca.

Gavi lenti í miðjum átökunum sem brutust út eftir að flautað var til leiksloka á leikvanginum í New York. Hann hafði gripið inn í til að verja liðsfélaga sinn, en argentínski miðjumaðurinn Leandro Paredes hrinti honum í jörðina.

„Í hreinskilni sagt þá tel ég að þeir eigi ekki að fara í bann. Ég geri mér grein fyrir því að það sem gerðist er ekki gott fordæmi fyrir börn en fótbolti felur líka í sér læti og ofbeldi. Það er eðlilegt að menn voru reknir af velli en þetta er hluti af leiknum," sagði Gavi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.