Fotbolti.net
02.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kópavogsvöllur verður Eikarvöllurinn

Kópavogsvöllur verður Eikarvöllurinn
Canon

Mynd: Breiðablik

Kópavogsvöllur, aðalvöllur stórveldis Breiðabliks, mun bera nafnið Eikarvöllurinn næstu árin eftir að fótboltadeild Breiðabliks gerði samstarfssamning við Eik fasteignafélag.
Samstarfið byggir á sameiginlegri sýn Breiðabliks og Eikar um mikilvægi öflugs íþróttastarfs, samfélagslegrar ábyrgðar og uppbyggingar til framtíðar. Höfuðstöðvar Eikar eru í Kópavogi og með samningnum styrkir fasteignafélagið tengsl sín enn frekar við samfélagið í bænum.

„Við hjá Eik trúum á langtímasambönd og dýpri tengsl við það samfélag sem við störfum í. Knattspyrnudeild Breiðabliks er stærsta knattspyrnudeild í Evrópu í iðkendafjölda, sem hefur náð alvöru árangri í áratugi. Við hlökkum til að verða virkur hluti af liðsheildinni í Kópavogi," segir Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar.

Með samstarfinu fær Breiðablik sterkan bakhjarl sem styður við starfsemina innan vallar sem utan.

„Við fögnum þessu nýja og öfluga samstarfi við Eik. Það skiptir okkur máli að eiga samstarfsaðila sem deila metnaði okkar og gildum og vilja taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu á íþróttaumhverfinu og samfélaginu í Kópavogi. Við í Breiðablik hlökkum til að taka á móti leikmönnum, stuðningsfólki og öðrum gestum á Eikarvellinum," segir Tanja Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Breiðabliks.

Eikarvöllurinn verður því nýtt kennileiti í Kópavoginum og áfram einn af fjölsóttustu völlum landsins.
Kópavogsvöllur verður Eikarvöllurinn
Canon

Mynd: Breiðablik

Kópavogsvöllur verður Eikarvöllurinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.