Haukur Páll: Léttir þegar markið kom
Auglýsing

Haukur Páll ræðir við dómarann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukur Páll ræðir við dómarann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur vann 3-0 sigur gegn Santa Coloma frá Andorra í kvöld og komst því áfram úr einvíginu 3-1. Valsmenn mæta Sheriff frá Moldavíu í næstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.
„Við vorum arfaslakir í fyrri leiknum, fótboltalega séð var þetta einn daprasti leikur sem við höfum spilað í langan tíma,\" sagði Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, eftir leikinn í kvöld.
„Við vissum að þetta yrði þolinmæðisverk og að við þyrftum ekki að skora tvö í hverri sókn. Við vorum flottir í kvöld.\"
Valsmenn skoruðu ekki í fimm hálfleikjum í röð. Hvað sögðu menn í hálfleik þegar staðan var markalaus?
„Bara halda áfram og finna svæðið milli miðju og varnar hjá þeim. Í fyrri hálfleik vorum við of margir á sama stað og við dreifðum okkur betur í seinni hálfleik. Það var léttir að finna markið frekar snemma í seinni hálfleik.\"
Haukur Páll verður í banni í fyrri leiknum gegn Sheriff þar sem hann hefur safnað þremur gulum spjöldum.
„Þá koma aðrir inn. Við erum með stóran og góðan hóp. Það voru menn utan hóps sem byrjuðu gegn Rosenborg.\"
Sjáðu viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.