Fotbolti.net
03.03.23 - 22:11
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía: Glæsimark Vecino tryggði Lazio sigur á toppliði Napoli

Matias Vecino fagnar sigurmarkinu

Matias Vecino fagnar sigurmarkinu

Canon

Mynd: Getty Images

Napoli 0 - 1 Lazio
0-1 Matias Vecino ('67 )
Magnaðri átta leikja sigurgöngu Napoli er lokið eftir að liðið tapaði fyrir Lazio, 1-0, í Seríu A í kvöld.

Napoli, sem er með átján stiga forystu á toppnum, var í miklu veseni með gestina.

Matias Vecino átti skalla sem Giovanni Di Lorenzo bjargaði á línu á fimmtu mínútu en Napoli kom sér í mörg ágætis færi áður en Vecino kom Lazio í forystu.

Það var á 67. mínútu en hann átti þá glæsilegt langskot sem hafnaði í netinu.

Victor Osimhen komst næst því að jafna en skalli hans fór í þverslá um ellefu mínútum fyrir leikslok áður en Ivan Provedel varði frákastið.

Lokatölur 1-0 fyrir Lazio sem tókst að binda enda á sigurgöngu Napoli. Lazio er í öðru sæti með 48 stig, sautján stigum á eftir Napoli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.