01.10.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon
Meiddist í landsleik með Svíþjóð og verður frá í fjóra til sex mánuði

Emil Holm meiddist gegn Rúmeníu.

Mynd: EPA

Emil Holm meiddist gegn Rúmeníu.

Mynd: EPA
Hægri bakvörðurinn Emil Holm meiddist í landsleik Svíþjóðar gegn Rúmeníu í Þjóðadeildinni og verður frá í fjóra til sex mánuði.
Félagslið hans, Bologna á Ítalíu, hefur gefið þetta út en Holm hefur gengist undir aðgerð vegna slæmra meiðsla aftan í hægra læri.
Matteo Darmian, fyrrum varnarmaður Manchester United og ítalska landsliðsins, gæti leyst Holm af hólmi en hann er án félags og hefur æft með Bologna síðustu daga.

Svíar hafa unnið báða leiki sína í B-deild Þjóðadeildarinnar og eiga útileik í Bosníu á morgun.