Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. september 2022 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Broja búinn að skrifa undir sex ára samning við Chelsea
Broja fékk rúmar 25 mínútur í óvæntu tapi gegn gömlu liðsfélögunum í Southampton.
Broja fékk rúmar 25 mínútur í óvæntu tapi gegn gömlu liðsfélögunum í Southampton.
Mynd: EPA

Armando Broja, efnilegur sóknarmaður Chelsea, er búinn að gera nýjan langtímasamning við félagið. Hann hefur komið inn af bekknum í fjórum af sex deildarleikjum félagsins á tímabilinu.


Broja er tvítugur landsliðsmaður Albaníu með fjögur mörk í fjórtán landsleikjum og sýndi flotta takta á láni hjá Southampton á síðustu leiktíð.

Hann vakti verðskuldaði athygli á sér og var eftirsóttur í sumar. Chelsea neitaði að selja hann eða lána út og hafnaði meðal annars 30 milljón punda tilboði frá West Ham.

Broja skrifar undir sex ára samning við Chelsea og mun berjast við Pierre-Emerick Aubameyang og Kai Havertz um byrjunarliðssæti undir stjórn Thomas Tuchel.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner