03.10.20 - 07:30
Victor Pálsson
Man United samdi við tvo efnilega - Mættur aftur frá Man City

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur fengið tvo unga leikmenn í akademíuna en félagið staðfesti þetta í gær.
Um er að ræða þá Alejandro Garnacho og Charlie McNeill en þeir munu spila með U18 liði félagsins á leiktíðinni.
Garnacho er 16 ára gamall sóknarmaður en hann kemur til enska stórliðsins frá Atletico Madrid á Spáni.
McNeil er þá 17 ára gamall og kemur aftur til United frá grönnunum í Manchester City.
McNeil kostar United 1,4 milljónir punda en hann yfirgaf akademíu United fyrir City árið 2013 en er nú snúinn aftur.