Fotbolti.net
04.06.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Adam Árni að jafna sig eftir beinbrot

Adam Árni að jafna sig eftir beinbrot
Canon

Mynd: Kári Snorrason

Lengjudeildin
Adam Árni Róbertsson (1999) hefur ekki spilað með Þrótti til þessa í Lengjudeildinni. Fyrstu fregnir af fjarveru hans voru á þá leið að það væri stutt í endurkomu, en þær fregnir reyndust ekki réttar.

Ástæðan fyrir fjarveru hans er beinbrot í sköflungi sem erfitt var að greina í fyrstu.
Framherjinn, sem var þriðji markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra, segir við Fótbolta.net að hann horfi í að verða orðinn klár eftir um tvær vikur en þá verða liðnar átta vikur frá því hann meiddist.

Þróttur keypti Adam af Grindavík í vetur, hann skrifaði undir þriggja ára samning og er honum ætlað stórt hlutverk í sóknarleik liðsins. Þróttarar höfðu misstigið sig í þremur leikjum í röð þegar kom að leiknum gegn Grindavík á mánudag en þá vannst 2-0 heimasigur í Laugardalnum.

Næsti leikur liðsins verður gegn Fylkir á útivelli á laugardag.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding12+1625
2Þróttur R.13+1224
3Fylkir12+624
4HK13+222
5Vestri13+221
6Leiknir R.13+119
7Grótta12-319
8Njarðvík12+317
9ÍR13-712
10Grindavík11-310
11Völsungur12-118
12Ægir14-188
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.