Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   sun 04. júlí 2021 15:06
Brynjar Ingi Erluson
Noregur: Viðar skoraði og lagði upp í sigri - „Eitt af mörkum ársins"
Mynd: Sandefjord
Viðar Ari Jónsson heldur áfram að gera gott mót með Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni en hann skoraði og lagði upp í 2-0 sigri liðsins á Stabæk í dag.

Hann skoraði eftir aðeins níu mínútur og tala norskir fjölmiðlar um að þetta sé eitt af mörkum ársins.

Viðar fékk boltann hægra megin við teiginn, færði hann yfir á vinstri og skaut boltanum í samskeytin. Óverjandi fyrir markvörð Stabæk.

Hann lagði svo upp annað markið á 59. mínútu leiksins en hann hefur farið tímabilið virkilega vel af stað.

Viðar er með 3 mörk og 2 stoðsendingar í fyrstu níu leikjunum og er Sandefjord nú í 10. sæti deildarinnar með 12 stig.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan. Lars Tjærnås, blaðamaður hjá Aftenposten, segir þetta vera eitt af mörkum ársins.




Athugasemdir
banner